Excel grunnnámskeið

Vefnámskeið með Hrólfi

Um námskeiðið

Excel kunnátta nýtist í öllum störfum og góð þekking á forritinu flýtir fyrir. Á þessu námskeiði er meðal annars farið yfir:

  • Formúlur: Hvernig er hægt að flýta fyrir reikningum? Hvaða innbyggðu formúlur eru mikið notaðar?
  • Leit og tengingar:Hvernig get ég sótt gögn á aðra staði í skjalinu? Hvernig er gott að leita?
  • Skilyrði: Hvernig er hægt að sía og vinna með gögnin eftir ákveðnum skilyrðum?
  • Gröf: Hvernig þú setur upp gröf í excel og stillir þau?
  • Vinnubrögð: Hvað gott er að hafa í huga þegar unnið er í excel?
  • Töflur: Hvað eru Pivot töflur? Hvernig má nýta sér þær?

Námskeiðið er kennt á netinu og þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig. Þ.

Skráning

Vefnámskeið með Hrólfi. Innifalið eru 12 fyrirlestrar, innra net þar sem þú getur horft í öllum tækjum og skírteini þegar þú klárar.

Frá 19.900 kr. - sjá öll námskeið í boði

EÐA

Vissir þú að flest stéttarfélög endurgreiða stóran hluta námskeiðsgjaldsins? Sjá nánar hér.

Flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjöld Frama. Finndu þitt stéttarfélag hér að neðan



Kennarinn þinn

Hrólfur

Hrólfur hefur unnið við Excel í áratug. Hann hefur aðallega unnið í fjármálageiranum og búið þar til flókin og yfirgripsmikil líkön sem reyna á alla virkni forritsins.

Hrólfur er því sannkallaður sérfræðingur í Excel og þekkir króka og kima þess inn og út. Hrólfur er bæði með háskólapróf í verkfræði og MBA gráðu.

Á námskeiðinu fer Hrólfur yfir allt það helsta sem þú þarft að kunna til þess að nýta Excel og verkfæri þess sem best.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum sem:

  • Vilja eiga auðveldara með að skoða og greina gögn
  • Vilja verða betri starfskraftar og auka afköstin í vinnunni
  • Eru spenntir að bæta við sig nýrri þekkingu og hæfileikum

Hvað mun ég læra?

Eftir námskeiðið munt þú skilja:

  • Að nota vinsælustu formúlurnar í Excel
  • Að greina gögn á fljótlegan hátt
  • Að nýta Excel kunnáttuna til að standa þig betur í starfi

Efnistök

Skoðaðu hvaða fyrirlestrar og annað efni er innifalið í námskeiðinu

Inngangur og helstu formúlur
Inngangur
3:37
SUM,AVERAGE,COUNT,COUNTA,MAX,MIN
15:08
VLOOKUP,IFERROR
13:02
Verkefni #1
8:15
IF, SUMIF, COUNTIF, AVERAGEIF
9:15
INDEX + MATCH
7:25
Verkefni #2
13:09
Unnið með gögn
Autofilter
6:19
Pivot töflur
9:19
Gröf
9:36
Vinnubrögð
4:02
Verkefni #3
14:29
Lok námskeiðs
Könnun
Útskriftarskírteini

12 fyrirlestrar | aðstoð innifalin

Námskeiðið er kennt á netinu. Þú getur byrjað hvenær sem er.

Fáðu öll námskeiðin

Með því að skrá þig í áskrift færð þú ótakmarkaðan aðgang að öllum námskeiðum Frama. Auk þess færðu aðgang að nýjum námskeiðum um leið og þau koma út. Þú getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er.

Styrktu ferilskrána

Þegar þú hefur lokið við námskeiðið færðu útskriftarskírteini sem staðfestir það sem þú lærðir.

Þú getur notað skírteinið til þess að sýna núverandi eða verðandi vinnuveitanda þínum eða sett staðfestinguna á ferilskrána þína.

Spurt og svarað

Hvað er innifalið?
Námskeiðið samanstendur af 12 fyrirlestrum sem þú færð aðgang að á nemendasvæði Frama. Þú getur jafnframt spurt spurninga á nemendasvæðinu. Þegar þú lýkur námskeiðinu færðu sent útskriftarskírteini.
Hvað gildir aðgangurinn lengi?
Ævilangur aðgangur er að námskeiðinu ef þú kaupir það stakt. Ef þú skráir þig í áskrift færðu fullan aðgang að námskeiðinu auk allra annarra námskeiða Frama í eitt ár. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa og hægt er að segja henni upp hvenær sem er.
Get ég fengið styrk frá stéttarfélagi?
Flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Skoðaðu endurgreiðslustefnu stéttarfélaga með því að smella hér.
Hvers vegna ætti ég að kunna á Excel?
Langstærstur hluti gagnavinnu, hvort sem það er að skoða eða greina gögn, fer fram í Excel. Forritið er það langvinsælasta sinnar tegundar í heimi. Þekking á helstu möguleikum þess nýtist því í nær öllum störfum þar sem gögn koma við sögu.
Hvort kennið þið á Windows eða Mac?
Það skiptir ekki máli hvort þú notar Windows eða Mac. Allt sem kennt er á námskeiðinu virkar í báðum stýrikerfum.
Ég er með aðra spurningu
Ekkert mál - sendu okkur skilaboð hér á síðunni eða tölvupóst á hjalp@frami.is og við svörum um hæl.

Byrjaðu að læra í dag

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

Grandagarði 16

101 Reykjavík